Skyggni var gott, háskýjað og úrkomulaust. Hiti var um 5-7 gráður en nokkuð stíf vestan átt við sjóinn. Í ár mættu 9 manns á Norðfirði en 8 í Reyðarfirði. Í þessum athugunum eru óskir og kröfur aðlagaðar að þátttakendum. Spjallað er um atferli, farflug og heiti fugla, bæði hjá algengari tegundum jafnt sem þeim sjaldgæfari eða tegundum sem erfiðari eru í greiningu. Öllum sem vilja er leyft að prófa fjarsjár náttúrustofunnar þar sem sjá má fuglana í meira návígi og aðstoðað við stillingar eða við að finna tegundir og greiningareinkenni þeirra. Tilgangurinn er fyrst og fremst útivera í fjörunni þar sem skipst er á ýmsum fuglafróðleik með öðrum fuglaáhugamönnum á ólíkum aldurs- og getustigum.
Að þessu sinni sáust 32 fuglategundir auk tveggja blendingstegunda á Reyðarfirði en 29 tegundir á Norðfirði. Tegundirnar sem sáust voru eftirfarandi: fýll, heiðagæs, grágæs, helsingi, stokkönd, grafönd, rauðhöfðaönd, urtönd, duggönd, skúfönd, æðarfugl, hávella, toppönd, tjaldur, sandlóa, heiðlóa, rauðbrystingur, tildra, lóuþræll, stelkur, jaðrakan, spói, hrossagaukur, hettumáfur, silfurmáfur, bjartmáfur, kría, lundi, álka, bjargdúfa, skógarþröstur, hrafn, auk blendinga aliandar- og stokkandar annarsvegar og aligæsar- og grágæsar hinsvegar. Fýll, helsingi, grafönd, urtönd, duggönd, rauðbrystingur, lundi, álka, og bjargdúfa sáust einungis á Reyðarfirði. En sílamáfur, straumönd og steindepill sáust einungis á Norðfirði.