Laugardaginn 29. ágúst var hjólaferð á dagskrá ferðafélagsins. Var hjólað úr botni Mjóafjarðar út á Dalatanga og til baka, alls um 50 kílómetra. Ekki voru nema þrír sem hjóluðu.
Ljósm. Kristinn Þorsteinsson
Friðheimur
Útlendur bakpokamaður við Fjarðará. Hafði gengið daginn áður yfir Miðstrandarskarð frá Norðfirði. Nýbúinn að vaða Fjarðará og ætlaði síðan yfir Króardalsskarð til Seyðisfjarðar
Stórhveli var í firðinum, skammt undan landi. Ekki náðist mynd þegar hann kom upp til að anda
Hlaðin fjárborg við eyðibýlið Skóga
Árni og Þóroddur
Komið að Selhellu, innsta húsinu í Brekkuþorpi. Verið er að endurbyggja það sem frístundahús
Gula húsið er Sandhús. Vinstra megin við það ber Höfðabrekku
Rafstöðin á Brekku. Ekki lengur í notkun
Um rafstöðina
Við Hofsá
Hof. Húsið hefur verið endurbyggt sem frístundahús. Sigfús bóndi á Brekku að heyja túnið
Vegurinn úr Mjóafirði til Dalatanga liggur um Steinsnesháls, Steinsnesdal, Dalaskriður og Daladal. Þetta er frekar erfið hjólaleið, upp og niður og hátt niður í sjó úr Dalaskriðum
Norðfjarðarnýpa handan Mjóafjarðar. Utar er Barðsnes. Norðfjarðarflói er þar á milli
Dalatangi í fjarska
Húshleðsla í Minnidölum
Daladalur og Dalaskarð í dalsbotni
Dalatangi
Nýrri vitinn, byggður 1908 og endurbyggður 1918
Gamli vitinn, reistur 1895
Næst norðan við Dalatanga (Mjóafjörð) eru Seyðisfjörður, Loðmundarfjörður og Húsavík. Þarna sér til fjalla norðan Seyðisfjarðar og Loðmundarfjarðar
Heiða heimasæta á Dalatanga sýndi okkur vitann
Uppá vitahúsinu. Stúturinn, næst á miðri mynd er þokulúður sem var þeyttur áður fyrr, í þoku. Búið er að gera hann upp og fá gestir að heyra öskrið í honum. Sagt er að í góðu veðri heyrist í honum alla leið inní Brekku, um 15 kílómetra
Daladalur, Akurfell yfir
Norðfjarðarnýpa handan Mjóafjarðar. Utar er Barðsnes. Norðfjarðarflói er þar á milli
Jóhanna á Brekku var við þriðja mann í berjamó. Þau voru búin að tína nokkuð af ágætlega þroskuðum bláberjum en berjaspretta er annars nokkuð sein austanlands þetta árið
Kirkjan var heimsótt, í bakaleiðinni
Vilhjálmur Hjálmarsson alþingismaður og ráðherra er eflaust þekktastur Mjófirðinga. Hann lést 2014, á hundraðasta aldursári. Á myndinni eru leiði Vilhjálms og Margrétar konu hans