Skip to main content

126472

Fjöllin fimm í Fjarðabyggð

Vilt þú hljóta nafnbótina fjallagarpur Fjarðabyggðar ?


Ferðafélag Fjarðamanna hefur komið fyrir gestabókum og stimplum á fimm fjöll í Fjarðabyggð. Til þess að hljóta nafnbótina fjallagarpur Fjarðabyggðar þarft þú að kaupa þar til gert stimpilhefti og stimpla í það nafn hvers fjalls þegar þú hefur komist á topp þess. Þegar þú hefur sigrað öll fjöllin fimm framvísar þú stimpilheftinu til Kömmu (s. 8471690) og færð þá sigurlaun frá ferðafélaginu. Unglingar fimmtán ára og yngri fá sömu viðurkenningu eftir að hafa gengið á þrjú af fimm verðlaunafjallana að eigin vali. Við hvetjum þó til þess að börn og unglingar fari ekki á fjöll nema með fullorðnum.

Heftið kostar 2.000 kr. og fæst í SÚN búðinni á Neskaupstað og Veiðiflugunni á Reyðarfirði. Einnig hægt að nálgast hefti hjá Kömmu í síma 8471690.

  • Goðaborg - 1132 m, GPS: N 65°09,532' W 13°55,611'. Best að fara upp með Tandrastaðaá í Fannardal. Neðst í Hóladal er sveigt dálítið til vinstri og gengið upp að Goðaborginni sjálfri. Á hana er auðgengt að austanverðu.

  • Svartafjall - 1021 m, GPS: N 65°04,655' W 13°55,285'. Stikuð leið. Ekið er upp gamla Oddsskarðsveginn Eskifjarðarmegin uns komið er að stikum á vinstri hönd. Gangan hefst í um 600 metra hæð. Greið leið í mikið útsýni.

  • Hólmatindur - 985 m, GPS: N 65°03,623' W 14°03,614'. Farið frá Sómastöðum upp með Grjótá að austan upp Grjótárdal, síðan til hægri upp á tindinn.

  • Kistufell - 1239 m, GPS: N 65°03,661' W 14°24,906'. Best er að fara frá Áreyjum, inn Hjálpleysu inn á varp(þar sem hæst er á Hjálpleysu) og gengið meðfram fjallinu uns kemur að hvilft og klettalausri skriðu þar er gengið upp.

  • Hádegisfjall - 809 m, GPS N 65°00,476' W 14°14,062'. Farið frá munna Fáskrúðsfjarðarganga, upp með Hrútá að austan, fylgja henni upp fyrir fossa, fara þá yfir hana og stefna að Hrútaskarði. Er komið er uppundir skarðið er beygt til hægri og gengið fram á Hádegisfjallið. Gestabókin er fremst á fjallinu.

Allir fjallagarpar fá í verðlaun leirbolla með fjöllunum fimm, þegar þeir framvísa stimpluðu hefti til Kömmu. Bollinn er hannaður af leirlistakonunni Esther Ösp Gunnarsdóttur en hún hannaði jafnframt útlitið á stimpilheftinu.