Karlsstaðir í Vöðlavík
Glæsilegur gistiskáli með 33 svefnpokapláss í sannkallaðri náttúruparadís.
Verðskrá 2024
- Gisting: 6.500 kr (félagsmenn) / 9.500 kr (aðrir). Börn og unglingar 7-15 ára greiða hálft gjald, ókeypis fyrir yngri börn.
- Sturta: 400 kr (4x 100 kr. peninga þarf að setja í stjórnkassann fyrir hitarann).
- Aðstöðugjald: 1.000 kr.
- Tjaldstæði: 2.000 kr.
Aðstaða
- Gistirými: 33 svefnpokapláss.
- GPS staðsetning skálans: 65°01.803 13°40.354
- Timburkamína til upphitunar.
- Gashellur til eldunar inn í skála.
- Borðbúnaður, pottar og pönnur, kolagrill en ekki kol.
- Vatnssalerni og sturta (kostar 400 krónur í sturtu).
- Sjálfboðaliðar sjá um skálavörslu á sumrin en skálinn er lokaður á veturnar.
- Mjög lélegt farsímasamband.
Pöntun á gistingu: með tölvupósti á ffau@simnet.is eða í síma 847-1690 (Kamma Dögg Gísladóttir).