Laugardaginn 15. ágúst var sameiginleg ferð Ferðafélags Fjarðamanna og Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Genginn var hringur í Vöðlavík frá kirkjugarðinum sem þar er upp á Svartafjall. Þaðan var gengið út á brún ofan Valahjalla utan við Snæfugl og haldið eftir brúnum upp á Sauðatind. Af Sauðatindi var gengið niður á Krossanesmúla ofan Krossaness og þaðan niður í Vöðlavík.
Ljósm. Kristinn Þorsteinsson.