Laugardaginn 11. ágúst var gengið á Vaðhorn milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdals. Gengið var á fjallið frá bænum Tungu um Tungudal en leiðin til baka lá niður Lambadal að Dölum.
Ljósm. Kristinn Þorsteinsson
Við bæinn Tungu í upphafi ferðar
Gengið upp Tungudal. Vaðhorn við botn dalsins
Horft út Fáskrúðsfjörð
Gengið upp Bröttubrekku. Svartagil til vinstri
Gengið var upp á öxlina vinstra megin við fjallið
Gengið er upp þá hlið fjallsins sem snýr að Breiðdal
Fjallagarparnir Skúli og Fríða. Skúli slóst í hópinn við uppgönguna á tindinn en hann hafði fyrr um morguninn gengið á Jökultind
Horft niður Tungudal
Kambfjall og Tunguröð næst á myndinni. Fjær talið frá vinstri eru Sauðdalsfjall, Hoffell og Lambafell
Launárskarð fyrir neðan og Heiðarhnjúkur ( Mið-Vaðhorn) fyrir aftan það
Fjallstindar austan við Vaðhorn. Fyrir miðri mynd ber Jökultind hæst
Tungudalur og Fáskrúðsfjörður
Þorsteinn Jakobsson var með í för en hann stefnir að því að ganga fyrir Ljósið á öll bæjarfjöll landsins. Hann var þessa dagana að ljúka við að ganga á helstu bæjarfjöll Austfjarða
Lambafell fyrir miðri mynd
Þorsteinn Jakobsson
Fyrir neðan er Lambaskarð og Lambadalur niður úr því
Snæfell fjær
Komið niður í Lambaskarð
Í Lambadal. Hrútfell fyrir miðri mynd
Gengið niður að Dölum
Að lokum þurfti að vaða yfir Dalsá