Föstudaginn langa 18. apríl var hefðbundin píslarganga á skíðum. Gengið var frá Neðstubrú á Fagradal á Grænafell. í botni Reyðarfjarðar. Þetta er um 16 km leið fram og til baka. Þátttakendur voru fjórir menn og einn hundur.Ljósm. Kristinn Þorsteinsson.
Lagt var af stað frá Neðstubrú á Fagradal
Upp undir Sléttadalsvarpi
Kistufell til hægri. Áreyjatindur fjær
Á Sléttadalsvarpi. Sést niður í Sléttadal. Norðurfell á hægri hönd
Haldið niður í Sléttadal
Fjöllin við Reyðarfjörð að koma í ljós. Sést inn Hjálmadal
Suðurfell komið í ljós
Sléttidalur og Skagafell í baksýn
Hreindýrahjörð hélt sig við Grænafell
Komið upp á varpið utan við Grænafellsvatn
Hreindýrahjörðin komin út á ísilagt Grænafellsvatn
Á leið upp Suðurfell
Ákveðið var að ganga síðasta spölinn á Suðurfellið án skíða sökum harðfennis. Hjálpleysa og Botnatindur fyrir miðri mynd
Á toppi Suðurfells
Á leið niður af fjallinu
Þetta er eðla smalahundur og var því í byrjun með tilburði til að smala skíðamönnunum
Hreindýraslóðir í snjónum
Gengið áleiðis út á Norðurfell
Á Norðurfelli
Ferðafélag Fjarðamanna - kt. 690998-2549 - s: 8471690 - This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.