Skip to main content

126472

Laugardaginn 7. september var farin barna- og fjölskylduferð frá Víkurheiði og niður í Vöðlavík eftir gömlu hestaleiðinni með viðkomu í svokölluðum Líkhelli. Blíðskaparveður var þennan dag og stóðu krakkarnir sig frábærlega. Að gönguferð lokinni var grillað á Karlsstöðum í boði Ferðafélagsins. 

Frábær dagur í alla staði.

Myndir: Kamma Dögg Gísladóttir og Margrét Þorvaldsdóttir.