Skip to main content

126472

Gönguvikan í Fjarðabyggð

Gönguvikan "Á fætur í Fjarðabyggð" er með stærstu útivistarviðburðum ársins. Árið 2023 fer hún fram dagana 24.júní - 1.júlí.

Vikan stendur frá laugardegi til laugardags og fyllir því átta heila daga af fjölbreyttum viðburðum,  bæði gönguferðir og skemmtanir, en vikan er ekki síður skilgreind sem gleðivika. Áhersla er lögð á fjölbreyttar gönguleiðir við allra hæfi, s.s. fjölskyldugöngur, sögugöngur og göngur fyrir alvöru fjallagarpa og á kvöldin er brugðið á leik með kvöldvökum og sjóræningjapartíum.

Skipuleggjendur eru Ferðafélag Fjarðamanna í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri.